Heims um ból helg eru jól, Signuð mær son Guðs ól, Frelsun mannanna, frelsisins lind, Frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind Meinvill í myrkrunum lá. Meinvill í myrkrunum lá. Heimi í hátíð er ný, Himneskt ljós lýsir ský, Liggur í jötunni lávarður heims, Lifandi brunnur hins andlega seims, Konungur lífs vors og ljóss. Konungur lífs vors og ljóss. Heyra má himnum í frá Englasöng: „Allelújá“. Friður á jörðu, því faðirinn er Fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér Samastað syninum hjá. Samastað syninum hjá. Mel : Franz Xaver Gruber 1818 [STILLE NACHT] Text: Joseph Franz Mohr 1816 "Stille Nacht, heilige Nacht" EN : John Freeman Young 1859 "Silent Night, Holy Night" IS : Sveinbjörn Egilsson (1791-1852) "Heims um ból" Web : http://www.liederschatz.net